Masókismi
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 25 september
12.09.2008 01:53:24 / Dúkkulísa

Mannleg mistök

Jæja, mér er að mestu leyti runnin reiðin sem helltist yfir mig í gær þegar málfrelsi mitt var heft. Ég er enn á þeirri skoðun að stjórn BDSM á Íslandi sé að gera ýmislegt rangt en mér virðist sem margir setji samasem merki milli þess og að ég styðji stjórn UFSM í einu og öllu. Mér finnst stjórn UFSM hafa tekið ranga ákvörðun þegar hún ákvað að útiloka þennan aðila frá partýjum. Nú veit ég ekki nákvæmlega hvers eðlis þessar kvartanir á hendur honum voru en ég býst við að það megi setja þær í annan hvorn þessara flokka: Hvernig hann hagar sér eða hvernig hann er. Ef vandinn er hvernig hann hagar sér þá teldi ég besta ráðið að ræða það bara beint við hann að einhver tiltekin hegðun hans fari fyrir brjóstið á fólki og gefa honum tækifæri á að bæta sig. Ef vandinn er hvernig hann er þá er bara ekki mikið sem hann getur gert í því og fólk ætti að sýna það umburðarlyndi að una honum þess að vera eins og hann er, svo lengi sem hann er ekki skaðlegur öðrum.


Þannig að svona lítur þetta út fyrir mér: Stjórn UFSM gerði mistök. Stjórn BDSM á Íslandi gerði mistök. En við erum öll mannleg og menn gera mistök. Það þarf mikið hugrekki til að viðurkenna mistök sín og sjá að sér en ég trúi því að stjórnendur félaganna tveggja hafi þetta hugrekki. Ég hvet þau eindregið til að halda sáttafund þar sem bæði viðurkenna mistök sín, reyna sameiginlega að finna lausn á þeim vandamálum sem þetta ósætti hefur skapað og ræði um það hvað hægt er að gera til að koma í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 22:03:43 / Dúkkulísa

Önnur frábær blogg um sama málefni

http://lindaraven.wordpress.com/

http://sado.blogcentral.is/


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 21:56:28 / Dúkkulísa

Hér get ég í það minnsta tjáð mig

Ég hef nú eins og margir aðrir verið bönnuð tímabundið af umræðuþráðum fetishiceland.com fyrir að segja mína skoðun. Ég skrifaði póst inn á almennar umræður en honum var eytt. Þá birti ég hann aftur í örlítið breyttri mynd en honum var einnig eytt og ég bönnuð. Hér er það sem ég sagði í seinni póstinum:


Ég komst ekki hjá því að taka eftir þessum illdeilum sem eru í gangi milli BDSM á Íslandi og UFSM enda þótt ég kíki varla inn á fetishiceland.com né bdsm.is lengur. Ég hef ekki nennt að líta inn á þessar síður af því að endalaust valdatafl, drama og persónulegar deilur (sem allt í einu koma öllum í senunni við) valda því að það eitt að hugsa um senuna veldur mér kvíða. En þar sem ég er skráð í félagið þá fæ ég bara tölvupóst á mitt einkanetfang þar sem mér er tjáð að UFSM hafi bannað einhvern aðila og BDSM á Íslandi sé ofsalega reitt yfir þessu. Eins og það komi mér við! Ennfremur fæ ég að vita að UFSM hafi verið bannað að auglýsa á vegum BDSM á Íslandi. Það var lagið. Það hefur sýnt sig og sannað að besta leiðin til að leysa deilumál er að annar aðilinn taki sér stöðu sem hæstráðandi yfirvald og refsi hinum eins og óþekkum smákrakka. Nei, í alvöru talað, við erum í raunveruleikanum núna. Þetta er ekki leikur. Þið getið leikið Dom í svefnherberginu eins og þið viljið með fólki sem hefur gefið samþykki sitt en úti í raunveruleikanum þá erum við öll jöfn, og það leysir engan vanda að þykjast yfir aðra hafinn. Þeir taki þetta til sín sem eiga það.


Þetta vesen varðandi “þennan aðila” er leiðindamál. Persónulega hef ég ekkert á móti honum. Ég veit ekki hvaða ástæður fólk hefur til að kvarta yfir honum og veit ekkert hvort þær eru lögmætar eða ekki. Ég ætla bara að vera hlutlaus í þessu máli. Það er nú víst bara þannig að það líkar aldrei öllum við alla og það koma alltaf upp einhver svona vandamál. Þá er bara að ræða málin og reyna að finna lausn þannig að allir séu NÓGU sáttir. Það geta ekki alltaf allir verið fullkomlega sáttir.


Jæja, nú ekki nóg með að UFSM megi ekki auglýsa á vegum BDSM heldur hafa nú flestir stjórnendur UFSM verið bannaðir af fetischiceland.com. Og allir sem andmæla þessum vinnubrögðum vefstjórnar fetishiceland.com eru líka bannaðir. Skjótum alla sem andmæla yfirvaldinu! Heil Hitler!


Ég er að tala hérna bara fyrir sjálfa mig og engan annan. Ég er ekki með neinu í liði enda nenni ég ekki að taka þátt í þessu stríði milli einstakra aðila sem kemur mér ekkert við. Ég er bara búin að fá mig fullsadda af þessu rugli.


Búum við á Íslandi eða í Afghanistan? Ég vil fá að nota rétt minn til að tjá mig.


Kveðja

Dúkkulísa


Í fyrri póstinum nefndi ég nick “aðilans” og bætti við þeirri skoðun minni að sá sem eyddi þessum pósti væri bleyða og raggeit sem þyrði ekki að taka afleiðingum gjörða sinna. Fólk ætti að taka því eins og menn að aðrir væru ósammála því.

Þar sem þetta er opin síða hef ég ákveðið að nefna “aðilann” ekki á nafn.


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 15:10:12 / Dúkkulísa

Það sem enginn veit

Væri ekki skemmtilegt að fara í skólann með skólatöskuna sína og þessir hlutir væru í henni: stærðfræðibók, efnafræðibók, pennaveski, nesti, geirvörtuklemmur, flogger, titrari, auka batterí og orkudrykkur. Tíhí. Og enginn vissi hvað ég geymdi í töskunni minni eða hvað ég væri að fara að gera eftir skóla.

» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 21:46:12 / undirgefin

Sambandinu lokið

Ég og Goddess Lillith höfum slitið sambandi okkar. Ég ætla ekki að fara út í ástæður þess hér en get sagt að það gerðist í góðu og við erum enn góðar vinkonur. Ég vil þakka Goddess Lillith fyrir tímann okkar saman og fyrir allt sem hún hefur kennt mér og hjálpað mér með. Ég kem mun sterkari manneskja út úr sambandinu en ég kom inn í það. Þetta var lífsreynsla og mörgu mun ég aldrei gleyma. Þakka þér fyrir GL.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 02:06:58 / Dúkkulísa

Nei, ég er ekki hætt

Bara búin að vera alltof löt við að blogga. Vá, það er bara komið árið 2008. Ég man þegar ég var 6 ára að syrgja árið 1993. Mér fannst lagið svo sorglegt sem ég heyrði í sjónvarpinu: Nú árið er liðið í aldanna skaut, og aldrei það kemur til baka. Ég syrgi nú árin ekki mikið lengur en þessi áramót var ég samt eitthvað svo leið því mér fannst ég ekki tilbúin fyrir nýtt ár. Ég vildi ekki að það kæmi strax. Það var áramótapartý hjá Totalitarian State sem var mjög vel heppnað og fólk skemmti sér vel en ég var bara frekar leið og náði ekki að njóta kvöldsins almennilega. Mistress var glæsileg og ég vona að Hún hafi skemmt sér vel, mér þykir leitt ef ég dró Hana eitthvað niður. Hún leyfði Sado að leika pínu við mig. Hann lét mig setjast við hliðina á sér, ýtti höfðinu á mér niður að gólfi og setti fótinn ofan á hárið á mér. Mér tókst ekki að toga mig lausa. Svo fór hann að stríða mér með því að setja kalt glas eða flösku á bakið á mér þar sem það var bert og síðan pota í rifbeinin þar sem mig kitlar rosalega. Svo kom Mistress og kitlaði mig enn meira. Þetta var mjög skemmtilegt en það var samt ekki hægt að hífa mig upp úr leiða skapinu mínu. Smá hluta af kvöldinu eyddum ég og önnur substelpa (sem ég veit ekki hvort vill láta nafns síns getið ) í að gráta saman í sófanum niðri. Við vorum samt ekki að draga hvor aðra niður. Mér fannst reyndar mjög gott að tala við hana. Ég sagði henni að mér hefði fundist 2007 svo gott ár og ég vildi ekki að það væri búið. Hún sagði að kannski yrði 2008 betra. Ég hafði bara alls ekki hugsað út í það. Mér fannst gott að hún benti mér á svona jákvæðan punkt. Eftir smá stund kom Domminn hennar niður og hún gat talað við hann og eftir smá stund leið okkur báðum betur. Hún sagði að sér hefði líka þótt gott að tala við mig og mér fannst svo gott að heyra að ég hefði látið eitthvað gott af mér leiða. Við fórum aftur upp í partýið. Kl. 5 var ég alveg búin á því og Mistress leyfði mér að fara niður og leggja mig.

Á nýárskvöld var ég síðan svona fáránlega hamingjusöm og áttaði mig á að ég væri komin í skapsveiflur og hafði verið í niðursveiflu í áramótapartýinu. Núna finnst mér ég bara venjuleg og held að skapsveiflurnar séu bara strax búnar. Ég vona það því að þótt uppsveiflurnar séu frábærar þá eru þær ekki þess virði fyrir niðursveiflurnar sem óhjákvæmilega fylgja með. Ég vona að þeirri sem ég grét með í partýinu líði líka betur.


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 04:51:40 / undirgefin

Freakout 2007!

Jæja þá er Freakout 2007 lokið og maður getur einbeitt sér að skólastressinu í staðinn fyrir Freakoutundirbúningsstressinu. Kvöldið var nú samt stressins virði að mínu mati. Dungeonnefndin var á síðasta snúning að plana og smíða og ég verð að þakka Rubberiusi aftur fyrir að hafa eytt hálfu kvöldinu sínu í að setja upp ramma fyrir róluna í dungeonherberginu. Þrátt fyrir að allt hafi verið á síðasta snúningi fannst mér á heildina litið takast mjög vel til. Ég hafði keypt ótrúlega flottan kimono kjól og fór sem geisha en endaði þó með að vera bara í kjólnum stutta stund því snemma eftir opnunina var atriðið okkar (GL, Mistress Alexöndru, sado, mitt og Sólgarms) og þar var ég bara í nærbuxum, brjóstahaldara og örstuttu pilsi. Eftir það fór ég ekkert aftur í kjólinn. Atriðið gekk ágætlega þó við hefðum ekki náð að æfa það mikið og smá vandamál hafi komið upp. Ég hafði verið stressuð því á síðustu æfingu hafði ég farið öll í klessu þegar Mistress stakk í mig einni nál og var hrædd um að ég myndi ekki höndla nálarnar átta sem atriðið gerði ráð fyrir. Voðalega getur maður verið skrýtinn. Ég hef mest tekið 56 nálar í röð í bakið og fer svo að grenja út af einni. En ég var náttúrlega illa upp lögð, sársaukinn var bara vondur og aðstæðurnar voru ekki alveg réttar svo það reyndi andlega á mig. Þegar nær dró kvöldinu tókst mér samt að gíra mig upp meira og meira og þegar að því kom var ég bara meira en tilbúin og naut þess þegar Hún stakk mig. Sólgarmur var illa sofinn en tók sínar nálar líka án vandkvæða. Í atriðinu voru borðar festir á milli nálanna í bringunum á okkur og við stóðum þannig að strekktist á þeim. Þetta er með bestu tegundum sársauka sem ég veit um og það var sérstaklega gaman að vera föst svona saman og meiða okkur alltaf bæði í einu þegar borðarnir toguðu í nálarnar. Eftir atriðið vorum við bæði komin í masókistaparadís og vildum helst ekkert losna við nálarnar sem eftir voru. Þær voru nú samt teknar og ég hafði gaman af að líta í spegil og sjá litlu blóðtaumana renna niður bakið og bringuna. Ég er hrifin af blóði. Takk Mistress og Mistress Alexandra. Þið voruð báðar glæsilegar. Sado stóð sig líka eins og hetja. Hann var með krampa meirihlutann af tímanum sem hann sat innpakkaður í stól en lét sig samt hafa það til að bjarga atriðinu.

Eftir okkar atriði var Master Cosmic frá Bretlandi með suspension atriði með The Princess og Vampire Kittie. Það var mjög flott og fróðlegt að horfa á. Í enda kvöldsins fékk ég líka að prófa að vera suspenduð af honum og hann batt mig upp lárétt svo ég horfði niður í gólfið u.þ.b. einn metra fyrir neðan mig. Þetta er í þriðja skiptið sem ég prófa að vera bundin hangandi. Í hin tvö skiptin var það sado sem batt mig upp. Hann er líka algjör snillingur í bindingum.

Nú langar mig ekki að hverfa aftur til hversdagsleikans. Mig langar ekki að takast á við vinnustress og skólastress. Mig langar að Mistress læsi mig einhvers staðar inni á litlum notalegum stað því þá get ég ekki haft áhyggjur af neinu fyrr en Hún hleypir mér út. En það verður að bíða. Ég ætla að ná þessum áföngum í skólanum og vinnan gefur dögunum tilgang.


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 02:36:32 / undirgefin

Gjald synda minna

Með andlit upp við veggi

situr lítil snót

með náladofna leggi

en hreyfist ekki hót.


Hún er löng beinvaxin kona

en andlega svo smá

þegar Mistress verður svona

óánægð að sjá.


Hana langar mest að vola

hún eitthvað af sér braut

núna má hún þola

herfilega þraut.


Það verður ekki um flúið

hún situr því um kjurrt

en þegar allt er búið

eru tárin þurrkuð burt.


“Allt er búið kæra”

segir Mistress hljótt og milt

“en reyndu nú að læra

og mundu að vera stillt.”


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 00:51:36 / undirgefin

Tannlæknir

Hafið þið séð gömlu myndina The little Shop of Horrors? Þar fór gaur til tannlæknis (held hann hafi verið leikinn af ungum Jack Nicholson) og og biður tannlækninn, sem var ekki raunverulegur tannlæknir, að bora í tennurnar sínar og draga þær úr. Og hann var svo greinilega að fíla það í tætlur. Greinilega masókisti þar á ferð.

Ég fór til tannlæknis fyrir nokkrum dögum og ég fíla sko ekki að láta draga úr mér tennur! Það þurfti að taka úr mér tvo endajaxla því þeir voru að vaxa út í kinn og bara ekkert pláss fyrir þá og ég hefði getað pissað á mig af hræðslu. Deyfingin virkaði ekki alveg nógu vel öðrum megin og sársaukinn gerði mig enn hræddari. En þetta hafðist nú allt og ég beit ekki tannlækninn eða neitt svoleiðis. Og nú liggja jaxlarnir mínir í vatnsglasi frammi í eldhúsi. Ég ætla að eiga þá því mér þykir vænt um þá. Bjarnargreiði frá líkama mínum. Örugglega vel meint en kom þó að meira ógagni en gagni.


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 22:24:51 / undirgefin

Minnkandi vinsældir

Ég hef verið að hugsa af hverju bloggið mitt hefur misst svo mikið fylgi. Það getur verið vegna þess að ég hef bloggað sjaldnar upp á síðkastið og fólki finnist því ekki ástæða til að vera að kíkja á það svo oft. Það myndi skýra af hverju bloggið hans sado er vinsælla en mitt. (Ein afbrýðisöm). En kannski eru aðrar ástæður. Fólk er kannski bara orðið leitt á blogginu mínu. Eða var það sakleysi mitt í byrjun sem fólk laðaðist að? Ég hef þróast mikið þetta ár sem ég hef skrifað í þetta blogg og sé alls ekki eftir að hafa breyst. Ég er svo miklu sterkari en ég var. Ef það er ástæðan fyrir minnkandi vinsældum bloggsins míns þá er það lítið gjald fyrir það mun betra líf sem ég lifi í dag. Þetta eru bara pælingar, engin fýla. Það skiptir ekki máli hve margir lesa, á meðan Mistress mín les bloggið þá held ég áfram að skrifa.


» 14 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 22:54:16 / undirgefin

Frábær leikur

Í fyrradag átti ég að mæta heim til Mistress en vaknaði alltof seint. Þegar ég hringdi í Hana leið Henni illa bæði út af mér og öðru sem hafði komið upp á og sagði mér að halda mig frá Sér í dag sjálfrar mín vegna. Ég fór samt til Hennar og ég held að nærvera mín hafi hjálpað Henni eitthvað við að draga Sig upp. Ég gaf Henni ís (og sjálfri mér líka) og svo datt Henni í hug að reyna að ná hárhnútum af bakinu á kettinum og ég hjálpaði Henni við það. Hún er búin að kenna mér svo mikið um hvernig á að ná sér upp úr þunglyndi. Hún kann þetta, best að hafa eitthvað fyrir stafni. Og þetta var eitthvað sem þurfti að gera þó að kötturinn hafi ekki verið alveg sáttur. En hann treystir okkur báðum svo þetta var ekki eins erfitt og ætla mætti.

Eftir þetta leið Henni betur og fór að spjalla við sado á msn á meðan ég vaskaði upp skálarnar. Hún sagði mér að sado ætlaði aðeins að kíkja við. Svo tók Hún upp lítið dótaegg sem Hún á og sagði mér að þvo það. Ég fór og þvoði það með dótaspreyinu og spurði svo hvort ég ætti að setja það á sinn stað. Hún sagði nei, hún ætlaði að nota það og sagði mér að koma með það til sín þar sem Hún var inni í eldhúsi. Ég kom til Hennar og rétti Henni eggið. Hún tók það og brosti lymskulega og sagði mér að gjöra svo vel að gyrða niður um mig buxurnar. Ég varð svolítið hissa og vandræðaleg, ég hafði haldið að Hún ætlaði sjálf að nota það. En ég gerði eins og mér var sagt. Svo kom Hún egginu fyrir ofan í nærbuxunum mínum og kveikti á því. Hún lét snúruna liggja aftur fyrir og festi hana undir brjóstahaldaranum svo stýringin hékk út úr hálsmálinu mínu. Svo dró Hún buxurnar aftur upp um mig og lét mig bara standa við hliðina á sér á meðan Hún var eitthvað að brasa í eldhúsinu. Eggið var ekki alveg á réttum stað. Ég spurði hvort ég mætti laga það. Hún sagði já og ég reyndi að laga það til en nærbuxurnar náðu ekki að halda því nógu þétt upp að svo að þetaa væri meira en svona pínu örvandi sem til lengdar varð bara pirrandi því það lét mig langa í meira. Mistress fannst þetta skemmtilegt. Hún tók sér oft smápásur frá því sem Hún var að gera til að breyta um stillingu á egginu eða minnka eða auka titringinn. Þegar Hún var búin kyssti Hún mig og ýtti egginu fastar upp. Það færðist samt alltaf eitthvað til og var aldrei alveg rétt. Mistress gyrti aftur niður um mig buxurnar, lét mig beygja mig fram og fór að flengja mig. Ég var orðin ótrúlega gröð. Hún sagði að ég hefði verið óþekk stelpa að koma svona seint til Sín. Ég fór að hugsa hvort Hún væri að refsa mér með því að gera mig alveg rosalega graða og stoppa svo. Ég var ekki viss en hafði svo sem engar áhyggjur af því. Ef svo væri þá ætti ég það alveg skilið. Svo hringdi dyrabjallan.

Mistress brosti og sagði mér að bíða í þessari stellingu á meðan Hún færi til dyra. Ég vonaði að þetta væri sado en samt ekki. Það væri samt líklega skást að hann sæi mig í þessari stöðu frekar en einhver annar. Þetta var hann. Mistress bauð honum inn og mig langaði helst að sökkva ofan í jörðina þegar hann gekk fram hjá eldhúsinu og sá mig með buxurnar niður um mig og hendurnar á hnjánum. Hann brosti og fannst þetta greinilega áhugavert. Þau fóru fram í stofu að tala saman. Eftir nokkra stund var þessi stelling farin að verða virkilega óþægileg. Mistress kallaði til mín og spurði hvernig mér liði. Ég spurði hvort ég mætti rétta úr mér. Hún sagði já. Svo ég stóð þarna með eggið í nærbuxunum þangað til mér fór að verða illt í hælunum. (Ég er með of þunna stuðpúa undir hælunum og á erfitt með að standa kyrr lengi). Ég kallaði til Hennar. Hún kallaði ákveðin til baka að Hún væri upptekin. Ég skammaðist mín fyrir að hafa truflað Hana. Eftir smá stund kom Hún til mín og spurði hvað væri að. Ég sagði Henni að mér væri orðið illt í hælunum. Hún lét mig setjast á koll í eldhúsinu enn með buxurnar á hælunum. Svo fór Hún aftur fram í stofu. Eftir smá stund kom sado í dyragættina og brosti pínu illkvittnislega. Hann spurði Hana hvað væri eiginlega í gangi. Hún sagði honum að ég væri sitjandi á eggi og spurði hvort hann vildi breyta um stillingu á því og hvernig stilling honum þætti skemmtilegust. Hann sagðist ekki vera viss um það en honum þætti gaman að hafa það þannig að það gæti bara mallað í langan tíma. Mér fannst það bara vera einmitt svoleiðis hjá mér núna. Hann kom og prófaði einhverjar stillingar og skildi mig svo aftur eftir inni í eldhúsi eftir að hafa strítt mér í pínu stund. Ég sat og lét mér leiðast í þessari ótrúlega niðurlægjandi stöðu. Mistress kom að mér þar sem ég var byrjuð að lesa utan á einhvern matarkassa sem ég sá. Hún sagði mér að loka augunum. Rétt áður en sado fór mátti ég opna augun aftur. Þegar hann var farinn spurði ég hvort ég mætti sitja hjá Henni inni í stofu. Hún sagði að ég mætti það ekki alveg strax og fór inn í stofu. Ég beið inni í eldhúsi og fljótlega sagði Hún mér að koma inn í stofu en ég mætti ekki taka upp um mig buxurnar. Ég labbaði inn í stofu með buxurnar rétt yfir hnjánum. Hún stóð upp og kyssti mig og leiddi mig að rúminu þar sem Hún henti mér á magann á rúmið og tók mig úr buxunum og nærbuxunum. Hún ýtti fótleggjunum á mér sundur og settist ofan á annað lærið á mér. Hún opnaði til að horfa inn í leggöngin. Mér finnst svo æsandi þegar Hún er að skoða mig svona. Svo tók Hún eggið og þrýsti því fast upp að snípnum á meðan Hún flengdi mig fast með hinni höndinni. Það tók ekki langan tíma áður en ég fékk það svo rosalega að ég öskraði næstum. Ég lá í smá stund kyrr og leið ótrúlega vel. Hún tók eggið og notaði það á Sig á meðan Hún flengdi mig aðeins meira. Svo lagðist Hún á magann og sagði mér að vera núna góð við Sig. Ég kyssti Hana og saug á Henni geirvörturnar og fór svo að sleikja Hana. Eftir góða stund sagðist Hún vera aðeins tilfinningadaufari eftir að hafa verið þunglynd fyrr um daginn svo Hún ætlaði að nota eggið því það væri hraðara og nákvæmara en tungan á mér. Mér fannst pínu leiðinlegt að hafa ekki sjálfri tekist að láta Hana fá það en skildi Hana samt vel. Ég rétti Henni eggið og Hún lét mig sjúga á sér geirvörturnar og síðan snúa mér við svo Hún gæti flengt mig þar til Hún fékk það. Ég var svo ánægð og þakkaði Henni fyrir leikinn.

Fljótlega eftir þetta ákváðum við að klæða okkur og fara og fá okkur pizzu. Á meðan við vorum að keyra kom hellidemba en svo var eins og við keyrðum út úr henni stuttu áður en við komum á staðinn. Við pöntuðum stóra pizzu saman og brauðstangir. Eftir þrjár pizzusneiðar og þrjár brauðstangir var ég orðin pakksödd. Mistress sagði að það gengi ekki að ég væri að leifa svona matnum og sagði að við færum ekki fyrr en ég væri búin að klára afganginn. Það voru en pizzusneið frá mér, tvær frá Henni og fjórar brauðstangir. Ég bjóst við að Hún myndi sýna mér miskunn eftir eina brauðstöng en Hún fylgdist brosandi með mér pína ofan í mig allar fjórar brauðstangirnar. Hún sagðist ætla að fita mig svo Hún gæti sett mig í megrun. Ég var ekkert alltof hrifin af þeirri hugmynd. Hún sótti samt box og ég fékk að sleppa við að borða pizzusneiðarnar. Það hefði samt ekki þurft mikið í viðbót til að ég ældi.

Eftir þetta fórum við heim til Hennar og ég var hjá Henni þangað til klukkan 2:30. Þá sagðist Hún ætla að fara að sofa og ég þyrfti að labba heim því Hún þyrfti að fá bílinn minn lánaðan eldsnemma í fyrramálið. Ég varð steinhissa og fannst nú að Hún hefði getað látið mig vita aðeins fyrr. Hún spurði hve lengi ég héldi að ég væri að ganga heim til mín. Ég giskaði á 40-50 mínútur. Hún sagðist hafa lofað að skutla vinkonu sinni út á keflavíkurflugvöll klukkan 7 um morguninn og hún þyrfti að fá bílinn minn því Hún hefði ekki Sinn. Ég horfði á Hana og reyndi að sjá hvort Hún væri að grínast eða ekki. Hún sagði mér að sækja peysu og regnjakka ef það skildi fara að rigna aftur. Ég fór og gerði eins og mér var sagt. Svo reknaði Hún út hvenær ég gæti verið farin að sofa og til klukkan hvað ég þyrfti þá að sofa daginn eftir og sagði mér að hringja í sig þá. Svo sagði Hún mér að fara að drífa mig. Hún var sem sagt ekki að grínast, hugsaði ég. Hún ætlaði í alvöru að láta mig ganga heim um miðja nótt. O jæja, ég hef lent í því verra. Svo kvaddi ég og fór. Þegar ég hafði gengið nokkrar húsaraðir hringdi Hún í mig og sagðist hafa gleymt að segja mér að vinkona Hennar væri ekki að fara fyrr en hinn daginn og Hún þyrfti ekkert bílinn minn svo ég mætti bara koma aftur til baka og sækja bíllykilinn. Ég vissi ekki alveg hvað ég átti að segja. Ég sagði að ég myndi líklega hafa húmor fyrir þessu á morgun en væri bara of þreytt núna til að finnast það fyndið. Ég gekk til baka og kom inn til Hennar. Hún sat í stól og sagði mér að setjast á móti Sér. Svo sagði Hún mér að Hún hefði í raun verið að prófa hvernig ég myndi taka þessu og að Hún væri mjög ánægð með mig því Henni fyndist ég hafa brugðist alveg rétt við. Ég geislaði af gleði af að heyra þetta. Hún sagðist hafa búist við að ég færi að þræta því það væri alveg satt að það hefðu verið til aðrar lausnir á málinu en að láta mig labba heim um miðja nótt. Ég sagði að ég hefði bara farið eftir því sem Hún var búin að ákveða. Hún sagði að það væri einmitt það sem Hún væri svo ánægð með. Og af því ég hefði verið svo dugleg mætti ég ákveða hvort ég vildi gista hjá Henni eða keyra heim. Ég var svo stolt af sjálfri mér og ánægð með að Hún væri ánægð með mig. Ég valdi að fara heim því ég hafði gleymt að taka andlitskrem sem ég á að nota á hverju kvöldi með til Hennar. Ég kvaddi Hana og keyrði heim enn ofsalega glöð.


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 02:49:06 / undirgefin

Bloggafmæli

 

Ég tók til heima hjá Mistress í dag og gerði stofuna svo fína. Hún var svo ánægð og ég var svo ánægð með að hafa glatt Hana. Mér leið svo vel þegar ég var að fara að líta yfir stofuna og sjá hvað hún var snyrtileg og hugsa um hvað Mistress var ánægð með mig. Vita að nú fannst Henni Hún vera heppin að eiga mig. Mér líður svo vel núna.

Þetta blogg á eins árs afmæli í dag. Ég man mjög vel þegar ég var að skrifa fyrstu færsluna úti í Þýskalandi fyrir einu ári mínus einhverjum klukkutímum. Það virkar ekkert svo langt síðan en ég veit að ég hef þroskast svo mikið síðan þá. Og ég er svo miklu ánægðari með stöðu mína í lífinu núna heldur en þá.

Held ég verði samt að fara að sofa núna því ég þarf að vakna klukkan sjö í fyrramálið til að fara í vinnuna. Ofsalega er þessi nákvæmlega sama sumarvinna og í fyrra miklu skemmtilegri en í fyrra. Líklega því mér líður miklu betur núna en síðasta sumar. Og ég veit að það er að miklu leiti Goddess Lillith að þakka. Ég kynntist Henni síðasta sumar.

Já og upp í rúm núna undirgefin. Góða nótt.


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 19:51:05 / undirgefin

Tiltekt fyrir leik

 

Í gær þegar ég settist inn í bíl til að keyra í vinnuna tók ég eftir að tvær flugur sátu á framrúðunni hjá mér í eldheitum ástarleik. Ég lét mér fátt um finnast og keyrði af stað. Það virtist trufla þær svolítið. Sérstaklega vindurinn sem feykti vængjunum á þeirri sem ég hafði ákveðið að væri karlflugan í vitlausa átt. Ég byrjaði að sjá fyrir mér hvernig væri að vera í þeirra aðstöðu. Þau í sakleysi sínu að reyna að fjölga kynstofni sínu og allt í einu fer heimurinn á hreyfingu. Kvenflugan sagði við karlfluguna: “Hvað er að gerast? Er heimsendir í nánd?.” “Ég veit það ekki ástin mín, en vertu ekki hrædd, ég er hjá þér.” Ég keyrði út á hraðbrautina og jók hraðann. Vindurinn varð of mikill fyrir flugurnar og að endingu var önnur þeirra hangandi í framrúðunni á einum fæti og hin í lausu lofti tengd við bólfélagann á rassinum. “Ég er að missa takið” sagði kvenflugan örvæntingarfull. “Slepptu mér og þá geturðu kannski haldið sjálfri þér, ég er glataður en það er óþarfi að við deyjum bæði!” “Ég sleppi þér aldrei ástin mín, frekar dey ég með þér.” “Ó, elskan, kysstu mig í síðasta sinn!” Og svo fuku þær báðar burt og lentu líklega í klessu á framrúðunni á næsta bíl. Eftir þennan harmþrungna atburð skundaði ég svo áhyggjulaus í vinnuna.

Eftir vinnu mætti ég heim til Mistress til að taka til og gera allt rosa fínt og tilbúið fyrir leikinn Hennar með sado í dag. Mér fannst ég pínu notuð að vera látin eyða öllum deginum meðan ég var ekki í vinnunni í að undirbúa leik sem ég fæ ekki að vera með í. Og ég fílaði það í botn. Um kvöldið tókum við okkur pásu og horfðum á Secratary (skylduáhorf fyrir D/s fólk) og eftir myndina var ég enn uppgíraðri í sub-hlutverkinu en ég hafði verið. Þegar leið á kvöldið var Mistress orðin pínu pirruð vegna margra ókláraðra hluta og ég elskaði að hlaupa til við hverja skipun frá Henni og vissi að það veitti Henni smá ánægju sem minnkaði pirringinn. Ég vildi að Hún tæki allan pirringinn Sinn út á mér. Ég vildi að Hún hvæsti á mig að vinna hraðar eða betur og hrifsaði af mér hluti sem ég rétti Henni án þess að horfa á mig. Hún gerði það samt ekki. Hún veit að ég er viðkvæm og gæti ekki þolað svoleiðis meðferð undir venjulegum kringumstæðum. En ég var bara í svona skapi í gær. Næst ætla ég að segja Henni það strax hvernig mér líður og spyrja hvort Hún vilji vera vond við mig. Ég var samt svo ánægð þegar allt var tilbúið seint um kvöldið og ég vissi að ég hafði gert allt sem ég gat til að leikurinn Hennar og sado yrði sem ánægjulegastur. Þau eru líklega á fullu núna og ég vona að allt gangi vel.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 02:58:15 / undirgefin

Nýtt blogg


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 04:41:45 / undirgefin

Dónalegasta blogg sem ég hef skrifað

 

Ég er í svo miklu masókistaskapi núna þó að þolið sé varla neitt. Ég fékk að meiða mig pínu sjálf áðan. Sló mig aðeins með gúmmífloggernum, hélt gaddabeltinu að mittinu á mér og setti clovera á geirvörturnar í pínu stund. Ég held að það sé þessum I-Doser dose að kenna sem ég prófaði aðeins áðan. Þið getið lesið um það hér www.i-doser.com. Þetta er forrit sem spilar hljóðskrár sem hafa verið þróaðar af einhverjum vísindamönnum. Þær spila mismunandi hljóðbylgjur í hvort eyra sem breytir heilabylgjunum og getur komið manni í allskonar skringileg ástönd. Hver hljóðskrá gerir mismunandi hluti og lætur mann upplifa mismunandi tilfinningar. Ég náði mér í crackaða útgáfu af þessu forriti og fullt af hljóðskrám sem ég get þá spilað aftur og aftur. Maður á nefnilega að borga í hvert skipti sem maður hlustar. (Uss ekki segja...) En að efninu, ein af skránum sem ég sótti heitir masochist og á að gefa manni mikla kynferðislega tilfinningu fyrst (sumir hafa víst næstum fengið fullnægingu af að hlusta á þetta) og síðan sársauka. Sársaukinn á að finnast sem bruni undir húðinni eða stingur í tönnunum. Ég var búin að prófa þrjár hljóðskrár á undan þessari og þær höfðu allar virkað takmarkað en þó eitthvað svo ég bjóst við að ég væri ein af þessum sem þurfa að prófa nokkrum sinnum áður en það byrjar að virka. Ég allavega setti þetta í gang og lagðist niður með headphonana á mér. Eftir svona tíu mínútur var ég byrjuð að fá svolitla vonbrigðatilfinningu og hugsaði að kannski virkaði þetta bara alls ekki á mig. En VÓ bíddu hvað var þetta? Uh-uh-SHIIIIIT! Allt í einu kom þessi magnaða kynferðislega tilfinning. Algjörlega upp úr engu. Ég fann herpinginn neðst í kviðnum og þægilegar bylgjur. Þetta varði í smá stund en það kom aldrei almennilegur sársauki. Samt örlítil brunatilfinning í húðinni á bakinu. En vá, svona hef ég aldrei upplifað áður. Þetta var ekkert smá gott. Svona tilfinningu hef ég aldrei áður fengið án þess að “hafa neitt fyrir því” ef svo má að orði komast. Og á meðan ég var að hlusta á þetta gat ég ekki hugsað um neitt nema kynlíf og þvíumlíkt. (Það byrjaði samt eftir að ég fékk þessa rosalegu tilfinningu fyrst þannig að ég er viss um að ég fékk hana ekki bara af því að hugsa einhverjar kinky hugsanir.) Ég hugsaði mest um það sem Mistress og ég vorum að gera í sturtunni fyrir nokkrum dögum. En ég býst ekki við að neinn vilji fá að vita neitt um það, það eru náttúrlega allt svo siðprúðir borgarar sem lesa þetta blogg. Hehe smá grín.

Það byrjaði á að við vorum einar heima hjá Henni og Hún sagði mér að fara úr fötunum og í kanínubúninginn. (Það er sko ekki einhver full body suit heldur bara loðinn brjóstahaldari, g-strengur og hárspöng með kanínueyrum.) Hún vildi láta dekra við Sig og sagði mér hvað ég átti að gera til að láta Henni líða vel. Ég gerði eins og mér var sagt. Fór og náði í þvottapoka með volgu vatni og strauk yfir allan líkamann Hennar meðan Hún lá uppi í rúmi. Þegar ég var búin að því náði ég í krem og fór að bera á Hana. Ég bar fyrst á handleggina og síðan yfir á brjóstkassann. Mér fannst gaman að sjá að þegar ég bar kremið á brjóstin Hennar þá herptust geirvörturnar saman. Mér finnst heiður að ég geti haft svona áhrif á Hana. Bara þó þau séu pínulítil. Þegar ég var búin með búkinn byrjaði ég á fótleggjunum. Ég byrjaði neðst og fór ofar og ofar þangað til ég var komin alveg upp og tók þá næsta fót þegar ég var búin með hann alveg upp hélt ég áfram að nudda innan á báðum lærunum. Ég var svolítið feimin en Hún sagði mér að þetta væri allt í lagi. Ég væri ekki að gera neitt af mér. Svo ég hélt áfram. Byrjaði neðst á lærinu og strauk alveg upp. Eftir nokkra stund af þessu teygði Hún sig í mig og togaði mig til Sín og kyssti mig. Hún nuddaði Sér upp við lærið mitt og ég hreyfði lærið á móti. Ég vildi gera eins vel og ég gat fyrir Hana. Hún klæddi mig úr kanínubúningnum og setti höndina á milli fótanna á mér. Ég hélt áfram að hreyfa mig á móti Henni svo að Henni liði vel. Öll einbeitingin mín fór í að hlusta á Hana og taka eftir hvort ég væri að gera rétt. Eftir svolitla stund af því fékk Hún það. Ég var rosalega ánægð. Hún var líka glöð. Hún spurði líka hvort ég hefði nokkuð fengið það. Ég sagði nei. Ég var bara að einbeita mér að því að Hún fengi það. Hún var ánægð með mig en sagði að ég mætti alveg hugsa aðeins um sjálfa mig líka. Ég sagði að mig langaði líka að fá það. Hún brosti og setti höndina aftur milli fótanna á mér og fór að nudda. Það var gott en ég held að ég sé alveg rosalega lengi að fá það og það þarf að fara alveg rosalega rétt að til að það gerist. Eftir góða stund hætti Hún og sagði: “Fróaðu þér, sýndu mér hvernig þú gerir það.” Ég varð rosalega skömmustuleg en gerði samt eins og Hún sagði mér. Á meðan tók Hún nokkrum sinnum fyrir nefið mitt og munninn svo ég gat ekki andað. Það er skemmtileg tilfinning því á meðan ég anda ekki deyfist tilfinningin til að byrja með og svo þegar Hún sleppti kom tilfinningin sterkari til baka. Eftir því sem Hún gerði þetta oftar byrjaði ég samt að finna meira á meðan. Hún hélt fyrir nefið á mér og kyssti mig fast. Í eitt slíkt skipti fékk ég það og Hún sleppti þá og leyfði mér að anda. Það var rosalega gott. Hún tók höndina mína og lét mig finna hvað Sér fannst þetta gaman. Hún sagði að Sér fyndist æsandi að horfa á mig fróa mér. Ég roðnaði smá en var upp með mér. Hún sagði að við ættum að fara í sturtu. Hún tók mig með Sér inn á baðherbergi og inn í sturtuna og lét vatnið beinast yfir mig alla meðan það var að blandast. Ah! Heitt! Kalt! Heitt! Ahhh.... Við vorum í smá stund bara að þvo okkur í sturtunni en síðan tók Hún sturtuhausinn af vatnsslöngunni og lét vatnsstrauminn beinast upp á milli fótanna á Sér. Hún settist niður í sturtubotninn og sagði mér að snúa mér við og beygja mig fram. Ég gerði það. Hún lagaði mig til svo ég var eins og Hún vildi hafa mig. Ýtti fótunum sundur og lét mig hafa rassinn meira út. Svo hafði Hún mig sem útsýni á meðan Hún fróaði Sér. Mér fannst rosalega gaman að Hún notaði mig á þennan hátt. Hún flengdi mig líka fast með lófanum og káfaði á mér á meðan. Mér fannst það bara gott. Hún sagði að Sér fyndist gaman að hafa mig svona alveg aðgengilega á meðan Hún fróaði Sér. Þegar Hún var búin að fá það nokkrum sinnum mátti ég standa upp og við kláruðum að þvo okkur, þurrka okkur og klæða okkur. Svo fékk ég að taka mig til, skutla Henni á þing og fara sjálf í matarboð til ömmu.


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 25801
Leitarbox

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
RSS tengill